26janúar
THELMA OG ANNA ERU HÆTTAR Í ÞESSARI SÍÐU!
EN endilega fylgist með okkur á www.thelmaoganna.bloggar.is....
þetta verður aðalsíðan;)
munið svo að kvitta þegar þið skoðið hana, í comment og gestó;)
12janúar
Langaði bara að segja að eftir 220 daga verð ég (Thelma) og Anna mín besta ekki á klakanum!!
stefnt er á Miami... Foreldrar mínir ætla að vera svo æðislegir að hjálpa mér í þessu svo ég komist pottþétt!!!! þetta verður svo GEÐVEIKT!! heimavistin verður snilld;)
en að er mikið sem við þurfum að gera til að skipuleggja þetta og hafa peningabugded;) (ekki góð í enskuskriftinni)
Anna nennuru að kenna mér að setja myndir inn á bloggið!!??
30desember
jæja prófin komu vel út hjá öllum held ég... það er alveg ótrúlegt hvað skólinn er búinn að vera fljótur að líða!! Reyndar einum of fljótur, ég vil ekki klára skólann strax því ég veit ekkert hvað ég á að gera eftir skólann!!
en Gamlárskvöld, hvað á að gera? Thelma og Gunna eru að pæla í að vera edrú og hafa það gott... ég hef heyrt að broadway sé vinsælast, flestir að fara þangað, en ég einfaldlega nenni ekki og Gunna ekki heldur!!
við erum að pæla í að hittast bara heima hjá mér, (btw ég = Thelma) fara í pottinn, spila, horfa á video,fara á rúntinn og bjóðast til að vera driverar!;)
En plís!! hvernig set ég myndir inn á með blogginu!
busadagurinn kemur inn fyrir kvöldið;)
12desember
Bara pæling en hvað á maður að gera á fimmtudaginn eftir prófin?
er það sumó? er það bara að chilla og drekka?
spila/stelpukvöld?
eða bara eitthvað rólegt eins og að líta í bíó/billjard og flippa eitthvað?
Og Anna það er jólainnkaup á sunnudaginn, ertu ekki til?
MYNDIR AF 85´BALLINU ERU KOMNAR INN!!
Busadagurinn kemur inn seinna...
23nóvember
Thelma er búin að skamma mig svo ótrúlega mikið fyrir að vera ekki búin að blogga neitt!! Ákvað að henda einu stikki af bloggi á síðuna svo að Thelma hætti að lemja mig
Gunna it´s your turn!!!
En allavega.... Það er ekki mikið af frétta, nema kannski að það er endalaust mikið að læra í skólanum!! Er gjörsamlega að deyja! En í dag eru nákvæmlega 21 dagur í jólafrí hjá mér, Thelmu og Gunnu!!
Ég og Thelma erum búnar að ákveða það að yfirgefa klakan næsta haust og leggja land undir fót! Ætlum að fara í ensku skóla í Sidney í Ástralíu og vera þar í a.m.k 3 mánuði!
Það verður alveg geggjað!! Við erum búnar að finna einn geggjaðan skóla sem er 100 m frá ströndinni og svo bara eftir ensku tíma förum við að surfa og ná okkur í tan svo við verðum nú brúnar fyrir jólin!!!!
En hef ekkert meira að segja í bili ætla að fara horfa á Beverly Hills!!! Ætla að reyna að setja inn mynd af skólanum en það kemur bara í ljós hvort ég get það því ég kann ekkert á þetta bloggar.is!!!
Later,
Anna

22nóvember
Hvort finnst ykkur kjánalegra að tala um Búlgaríu sem Búlgó eða Mallorka sem Malló????
Mér finnst ekkert að því að tala um Malló en þegar ég heyri orðið Búlgó!!!!! bara kjánalegt:P stelpurnar eru samt ekki sammála mér, skrítið!!!!
En hver ekki pirraður yfr því að allur snjórinn ákvað að láta vindinn feykja sér af fjöllunum og í kringum bílinn MINN!!!! já í morgun var hann fastur

eins og ALLIR aðrir bílar. SVo getur enginn notað rándýra skíðabúnaðinn sinn nema ef hann leggst það lágt að fara í Ártúnsbrekku, sem að ég og Helga ætlum reyndar að gera á morgun og svo ég og Thelma á fimtudaginn...... þetta gerir mig að double aula!!! en þetta verður pottþétt gaman:P
MIg langar líka að segja ykkur að ég er komin í jólaskap



hvað þurfti til???? tja í fyrsta lagi bullandi stórhríð á laugardagsnóttu, kul á lappirnar eftir að bíða úti á opnum skóm eftir mömmu hennar TInnu að skutla okkur i bæinn og svo auðvitað jólalagið ÉG HLAKKA SVO TIL þegar ég er að bíða í röðini fyrir utan Sólon. mæli með þessu ef þið viljið fílingin;)
jæja ég er farin kv. Lísa
20nóvember
ég er búin að skamma stelpurnar fyrir bloggleysi, en komst svo að því að ég er eina sem er með notendanafn og lykilorð... Sorry my fault!
en jæja hvað er búið að gerast? eða hvað er ekki búið að gerast?
byrjum á eplaballinu: það var mjög gaman og allir vel í glasi. Þorgils ætlaði að sýna sig og vera sá heitasti á svæðinu í græna hlýrabolnum sínum, en það gekk rosa illa því að allar stelpurnar rifu hann úr honum og varð kallinn mjög sár:S hehehe
á ballinu spiluðu Skímó og þeir stóðu sig geðveikt vel! maður varð svolítið ógeðslegur á köflum á ballinu. Tökum 2 dæmi...
Nr1.. ég og anna vorum að labba á efri hæðinni. Eg er eitthvað að tala við Önnu, en svo allt í einu hræki ég, var með eitthvað ógeðslegt munnvatn eða ég veit það ekki einu sinni, ég bara hrækti og hrækti óvart á bakið á stelpu... og já hún var ekki í bol, eða eitthvað, þannig þetta fór beint á bakið á henni....

Nr2.. ég og anna fórum inn á klóið á Broadway í leit að lísu... leitin skilaði engum árángri, en við fórum ekki tómhentar þarna út!! neinei við tökum sko klósettsetu með okkur fram.. og enduðum á því að hengja hana utan um hálsinn á Gilsinum.. Sorrrrrrrrrrrrrrryyy...
85´ball!! það er náttúrulega bara SNILLD!! maður var svo flott uppdressaður og læti! En Anna og lísa komu hingað um 6 leytið og eldaði ég eitt besta ostapasta sem til er, byrjað var að drekka og misst sig í BUZZ..
svo var farið í partýið og klárað áfengið og því lagt af stað niðrí bæ... ég og lísa ákváðum að blanda vodkanum okkar í bjórinn minn og eiga saman.. ég mæli ekki með þessum drykk!!!!
en á ballinu var geðveikt! moonboots voru flottir á því og dj herbergið geðveikt! lentu samt í pínu veseni, en allt reddaðist og enginn meiddist

en á laugardaginn 12.nóvember átti ÍVAR afmæli!!!
þannig það var strákahittingur hjá steinari, eða með mér og lísu;) þetta var mjög gaman og góð tilbreyting.. en við vorum samt stutt þar, fórum um 12-1 leytið niðrí bæ, þar sem allt vesenið byrjaði...
við ákváðum að byrja á prikinu, alveg ótrúlegt hvað maður hitti marga! en það var mjög gaman þar til ég og lísa fórum á klóið áður en við ætluðum að fara. leið og við komust á klóið byrjuðu einhverjar stelpur að banka og öskra.. þegar við komum út voru þessar stelpur eitthvað massívt að bögga okkur og ég eða lísa höfum ekki þolinmæði í eitthvað svona, þannig okkur var hent út fyrir slagsmál


en síðan var farið á sólon og dansað af sér rassgatið...;)
laugardagurinn 18nóv...
Ívar hélt upp á afmælið sitt.. ég og lísa mættu auðvitað, en Anna beilaði! ANNA ÞAÐ ER BARA HALLÆRISLEGT!! en drukkið var of mikið.. ég *hóst* dó 1:30 eða svo.. lísa fór í bæinn með Tinnu vinkonu sinni um 4-5 leytið.. þær sögðu að það hefði verið geðveikt gaman, spilað var jólalög og jólastemmarinn myndaðist..
En því miður gleymdi ég myndavél á öllum þessum djömmum

en ég er búin að henda inn fleiri myndum af Búlgaríu!!;)
09nóvember
jæjajæja,.. ég sit hérna að bíða eftir Önnu minni með vöfflað hár, netasokkabuxum og í þrengsta bol sem hægt er að fara í!! það er eins og ég sé með svaka bombur sem brjóst! (bara hot
)
85´ballið fræga er í dag og erum við því súperflottar og smart á því..
en jæja dagurinn á að hljóma svona... ég, lísa, Anna, steinar, ívar og kannski margrét ætlum að hittast hér, fara í marga hallærislega leiki sem eru mjög skemmtilegir, svo sem Buzz og singstar! svo munum við elda pasta og borða með ljúffenga bollu við hliðiná (get samt ekki lofað því að hún verði góð
)
svo verður bara skellt sér í fyrirpartýið sem hún Ingibjörg, ástin okkar tók að sér að halda og sturtað í sig því síðan er farið þaðan á 85´Ballið FRÆGA!!!
helgin framundan er svo ekkert sérstök.. ég er að vinna föstudaginn og á sunnudaginn!!
en mun ég gera eitthvað að viti á laugardaginn
en ég mun skrifa um helgina næst, allt slúðrið og skandalana...
28október
jæja jæja, fyrsta bloggið!!!
fyrsta bloggið er alltaf ömurlegt en reynum samt að hafa það smá skemmtilegt með því að segja einhverja rugl heimskulega sögu eða gullmola;)
Gullmoli nr1.....
Thelma og Lísa eru út á landi á útihátíð og lenda með manni í tjaldi sem að framdi morð eða morðtilraun á pabba sínum fyrir að hafa nauðgað mömmu sinni... Frekar ógeðslegt!! en nú jæja við skulum ekki segja mikið meira af þessari sögu... En þegar þessi gaur fer byrjar lísa að tala og segir.. Guð minn góður!! ojj og hvað er málið?? þú veist Thelma, foreldrarnir hans voru eða eru giftir, þá er ekkert hægt að nauðga konunni sinni!!
Gullmoli nr 2....
Gunnu er eitthvað að klóra sér í hausnum og segir svo við stelpurnar, djísús hvað mig klæjar! ég held ég sé með flatlús!!
En jæja við skulum láta gott heita, eg hef bara lítið að gera þannig ég ákvað að renna einu bloggi inn